EFLA hlaut Íslensku vefverðlaunin

18.03.2024

Fréttir
Verðlaunagripur íslensku vefverðlaunanna

Nýr alþjóðlegur vefur EFLU, EFLA-engineers.com, hlaut Íslensku vefverðlaunin síðastliðinn föstudag sem Fyrirtækjavefur ársins í flokki stórra fyrirtækja. 

Áhugaverð og lifandi framsetning á efni

Vefurinn er samstarfsverkefni EFLU og Hugsmiðjunnar sem veittu verðlaununum viðtöku við hátíðlega athöfn í Hafnarhúsinu þegar Samtök vefiðnaðarins héldu árlega uppskeruhátíð.  Digido kom einnig að vinnunni sem ráðgjafar EFLU.

Í umsögn dómnefndar, sem var lesin upp þegar verðlaunin voru afhent, var vefnum sérstaklega hrósað fyrir áhugaverða og lifandi framsetningu á efni. Mikil vinna var lögð í að koma upplýsingum um þjónustu og verkefni EFLU til skila á vefnum á skilmerkilegan og skýran hátt.

Aðrir vefir sem voru tilnefndir í sama flokki voru vefur Íslandsbanka, Domino's, Gangverk.com og vefur Sóltúns.

Starfsfólki EFLU og Hugsmiðjunnar óskum við til hamingju með verðlaunin.

Tvær konur brosandi með verðlaunagrip

Kristín Gunnarsdóttir, fyrirliði markaðsteymis EFLU, og Jónína Björk Vilhjálmsdóttir, sviðsstjóri þróunar, með verðlaunin.